Arctic Girl Geek Dinner

Það hefur verið áberandi fyrir mig og margar vinkonur mínar að það hefur vantað jákvæðan félagsskap kvenna sem hafa verið kallaðar nördar/strákar/proffar og það allt sem hrós.  Sem betur fer eru þetta konur sem taka málin í sínar hendur og höfum við nú ákveðið að taka upp breska hugmynd: Girl Geek Dinner.

Girl Geek Dinner er félagsskapur ‘girl geek’ sem hittast reglulega og kynnast, hlusta á tæknilega fyrirlestra, borða góðan mat og lyfta jafnvel glasi. Hér er áherslan á að vera skemmtilegur, læra nýtt, kynnast fólki og vera góðar fyrirmyndir.  Ef að strákana langar að vera með, þá mega þeir gjarnan mæta á viðburði, í fylgd með félagskonu.

Eftir að fyrsti klúbburinn var stofnaður fyrir 3 árum hefur orðið borist eins og eldur í sinu um allar jarðir og má finna Girl Geek Dinner klúbba vítt og breitt um heiminn, frá Kanada til Nýja-Sjálands. Og nú er komið að Arctic Girl Geek Dinner.

Eitt af því sem við rákumst á þegar við fórum að skoða þetta var að við vissum ekki hvað við ættum að kalla ‘girl geek’ á íslensku.  Svo við fengum til liðs við okkur Baldur Sigurðsson dósent í íslensku sem er einnig faðir úrvals ‘girl geek’ og hann kom upp með orðið ‘tæknitáta’.  Um leið og ég heyrði það þá langaði mig að vera tæknitáta.

Svona félagsskapur lifir náttúrulega á því að skemmtilegar kjarnakonur vilji vera memm.  Ef þú vilt vera memm ekki vera feimin við að skrá þig í Facebook-grúppuna sem við bjuggum til eða hafa samband.

Stefnan er að hafa fyrsta hittinginn í nóvember - skráið ykkur og verið með!

:)
MD

2 Comments »

  Bjarni wrote @ 3rd 2008f November, 2008 at 18:12

…darn, nú hefði verið gott að vera kvenkyns.

Alveg spurning að maður fari bara í aðgerðina :)

  maggadora wrote @ 3rd 2008f November, 2008 at 19:20

Þú ert meira en velkominn á alla fundi - það eina sem þú þarft að tryggja þér er að einhver tæknitátan geti hugsað sér að taka þig með. Hmmmm…. skyldirðu þekkja einhverja?

Your comment

HTML-Tags:
<a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>