Þegar ég var í Verzló í gamla daga vann ég mér inn vasapening með því að vinna hjá Jóni Bakan. Jón Bakan var með fyrstu pizzustöðunum á Íslandi sem buðu upp á heimsendingu. Eftir að vinna þarna tók það mig marga mánuði að losna við hvítlaukslyktina af fingrunum og mörg ár að langa i pizzu aftur.
En það situr enn í mér að hjá Jóni Bakan mátti fá 16″ með tveimur áleggstegundum á þúsundkall.
Og þessa vikuna eru ekki bara einn, heldur tveir pizzastaðir að bjóða pizzu með tveimur áleggstegundum á þúsundkall.
Verðbólga hvað?
Fyrir þá sem ekki eru sleipir í hugarreikningi (eða nógu kurteisir til að þykjast
) þá eru komin 18 ár síðan ég vann hjá Jóni Bakan. Á þeim tíma hefur neysluvísitalan farið úr 155 í 307. En 1000 kall dugir enn til að kaupa 16″ með tveimur áleggstegundum.
![]()
MD







Hver átti Jón Bakan ? Er hann ennþá lifandi ? Ég væri alveg til í eina pizzu frá honum
Láttu mig endilega vita hver eigandinn var, langar aðeins að rifja upp Jón Bakan með honum.
Kveðja,
svenni