Eins og allar tæknitátur vita þá höfum við okkar þörf fyrir að vera með nýjustu og flottustu græjurnar og það í nýjustu og flottustu umbúðunum.
Þess vegna höfum við í Arctic Girl Geek Dinner ákveðið að efna til fundar og fá til liðs með okkur fólk sem veit hvað þetta er mikilvægt.
Á miðvikudaginn (1. apríl) hefur tæknitátum verið boðið í heimsókn til Reykjavik Bags sem bjóða upp á úrval af svakalega flottum tölvutöskum. Í beinu framhaldi ætlar Síminn að sýna okkur nýjustu og flottustu farsímana.
Mæting á Skólavörðustíg 2 hjá Reykjavik Bags klukkan 18:00. Síðan færum við okkur yfir á Sólon til móts við Símann og dinner og spjall
Hlakka til að sjá ykkur! ![]()
MD







Þetta er alvöru Girl Geek Bag:
http://www.engadget.com/2009/04/24/nintendo-c64-purse-is-runway-caliber-fashion-accessory/
Vó! Kúl