Félagsmaður mánaðarins
Yðar einlæg er félagsmaður mánaðarins hjá Vinnuvistfræðingafélagi Íslands.
:)
MD
Yðar einlæg er félagsmaður mánaðarins hjá Vinnuvistfræðingafélagi Íslands.
:)
MD
Ég tók með mér nýju vasa-myndavélina okkar (Olympus Stylus 1030SW - hún er mjög kúl og er t.d. vatnsheld niður í 10m!) til San Francisco og tók nokkrar myndir þar sem ég skoppaði um og túrhestaðist.
Smellti þeim upp í sérstakt San Fran tabblo ef þið viljið skoða.
:)
MD
Verð að benda ykkur á hina frábæru vefverslun Birkiland.
Hún selur bara íslenska iðnhönnun, stórkostlega hluti eins og til dæmis þessa brilliant bolla:

Sjá nánar í manifesto-inu.
Fylgist með! Það bætist iðulega við nýtt og spennandi stöff.
:)
MD
Ég er búin að vera á innravefs námskeiði í San Francisco og það er búið að vera alveg stórkostlegt.
Í fyrsta lagi var þetta þrusunámskeið og ég er svoleiðis að bresta af hugmyndum og metnaði fyrir hönd innra vefs Símans.
Í öðru lagi er San Francisco frábær borg. Ég er búin að rölta hérna um tvö kvöld í dýrlegu veðri og ég get ekki beðið eftir að taka heilan túristadag á morgun!
Í þriðja lagi er ráðstefnuhótelið, Intercontinental Mark Hopkins, alveg bilað og það varð mér til happs að þeir móðguðu mig fyrsta kvöldið með því að vera búnir að láta herbergið mitt þegar ég kom. Mér var komið fyrir á Marriott hótelinu hérna við hliðina (sem er eins og Holiday Inn miðað við þetta hótel) og síðan hafa þeir ekki getað beðið mig afsökunar nóg. Ég fékk herbergi á 17 hæð, herbergi sem er partur af forsetasvítunni. Hún er hérna við hliðina á og það er innangegnt. Forseti Filipseyja er einmitt í forsetasvítunni núna. Baðherbergið er á stærð við íbúðina okkar á Framnesveginum með baðkari og sturtuklefa sem er svo stór að það eru tveir sturtuhausar í honum. Og í gærkvöldi fékk ég ávaxtabakka með innilegri afsökunarbeiðni frá hótelstjóranum.
Ekki ónýtt.
San Francisco er merkileg borg. Hérna eru t.d. algeng 4x Stop gatnamót þar sem allar akreinar eru á stöðvunarskyldu og svo er það bara spurning um að semja um hver fer næst. Gangandi vegfarendur verða að vera vakandi fyrir þessum samningaviðræðum. Hérna er einhvernveginn gott andrúmsloft. Litskrúðugt mannlíf og sterk samfélagskennd. Ég datt inn í bókabúðina City Lights áðan þar sem var gestum var boðið að “Have a seat and read a book”. Þessi bókabúð/forlag er fornfrægt og var víst helsta virki Beat-skáldanna sem náttúrulega bjuggu hér. Þarna er bókum ekki raðað eftir Dewey heldur raðað eftir áhugasviði starfsmanna eins og Emotional aesthetics sem innihélt bækur um auglýsingahönnun (í mjög breiðum skilningi þess orðs). Sálfræðihillan innihélt bara bækur eftir/um Freud og Jung. Afgreiðslufólkið spilaði svo tilraunakenndan jazz að ég hélt á tímabili að það væri köttur fyrir aftan afgreiðsluborðið að skerpa klærnar á krítartöflu. Þetta voru svo pirrandi hljóð að ég mátti hafa mig alla við að spyrja þau ekki um bækur eftir Björn Lomborg í strákskap mínum (vistfræðibókahillan bauð upp á það ;) ). Ég stóðst þó ekki mátið og keypti mér bók.
Það er svona jazz-bragur á þessari borg svo ég er að hugsa um að fara að koma mér á hótelbarinn þar sem spilaður er lifandi jazz á hverju kvöldi en barinn er á hæðinni fyrir ofan mig og státar af stórkostlegu útsýni.
:)
MD
*Með tilvísan í Scott McKenzie en ekki Todmobile
Hjalli stríðir mér iðulega á því að mér misheyrist. Aðallega samt á því að ég ét upp allt sem mér heyrist.
Dæmi:
Ha? Viltu eitt Aco?
Nei, Magga Dóra, ég pantaði heitt kakó!
Hér er dæmi um að ekki bara mér getur misheyrst og hér hefði Google kannski bara, eins og ég svo oft, átt að þegja frekar en að spyrja notandann hvað hann meinti:
;)
MD
Það er vandlifað. Og alltaf þegar maður er með yfirlýsingar þá þarf maður að éta þær ofan í sig. Ég er sem sagt komin með MBA. Eða það er það sem menn kalla MacBook Air.
Og þar liggur hættan. Einhverjir áhættusæknir Þjóðverjar hafa komist að því að MBA er svo þunn að með lagni þá má skera sig á henni! Ef fólk kann ekki við að prófa það á sjálfu sér, þá má víst prófa það á brauðhleif.
;)
MD
Tónleikar í Atlanta, Georgia þann 5. júlí næstkomandi. Ég, Hjalli, Hrönnsa og Maggan. Síðan vika í NY hjá Hrönn “literally-sex-in-the-city-ég-vinn-fyrir-Google” Brynjarsdóttur. Og tvö markmið af listanum í einu höggi.
Má það vera betra?
En fyrst: Borga vísa frá því í síðustu 2 ferðum…
Allt þess virði, að sjálfsögðu - sjá myndir frá Boston.
;)
MD
Því miður þá tók ég ekki hugsanalestur 101 í sálfræðinni í gamla daga. Þess vegna á ég í erfiðleikum með að skilja eftirfarandi skilaboð sem mér voru að berast:
“Einhver hefur kosið að senda þér eftirfarandi frétt af mbl.is
Skilaboð frá viðkomandi: “okkar dót?”
Veröld/Fólk | mbl | 15.5 | 7:47
Sólarorkubrjóstahaldari
Undirfataframleiðandinn Triumph kynnti í gær brjóstahaldara sem safnar sólarorku sem dugað getur til að hlaða farsíma eða iPod. Meira
© mbl.is/Árvakur hf”
Okkar?
Ég fæ ótrúlega oft skilaboð frá vinum og kunningjum með skemmtilegum fréttum frá mbl þar sem við komandi gleymir að kvitta fyrir sig. Yfirleitt næ ég að draga ályktun (þið megið kalla mig Sherlock) um hver er á ferðinni en hérna eru engar vísbendingar nema ég veit að þetta er ekki Hrönn því að það er íslenskur stafur í skilaboðunum.
En hver…?
:)
MD
Tom Waits var ad gefa thad út ad hann aetlar ad leggjast í tónleikahöld í sumar!
Sjá tomwaits.com
Í vikunni var tiltektardagur í Skipholti 15, beðin voru reitt, portið var smúlað, svo og ruslageymslan. Við fengum það hlutverk að kanna hvort það þyrfti að smúla hjólageymsluna. Eftir nokkra hringi inni í hjólageymslunni var ljóst að það væri ekki nauðsynlegt en um leið augljóst að hjólið okkar var alls ekki með hjólum hinna blokkarbúa.
Nú erum við hjónin bæði prófessorar, þó ekki að atvinnu. Það er ómögulegt fyrir okkur að fullyrða að læstu hjólinu okkar hafi verið stolið úr læstri hjólageymslunni í vetur. Það er jafnvel líklegra að í fyrrasumar hafi annað hvort okkar hjólað eitthvert og fengið far heim. Að hjólið okkar sé búið að standa hlekkjað við grind einhversstaðar í 9 mánuði og ryðga hægt í sundur.
Þannig að ef þið hafið séð silfrað 21 gíra Treck álhjól með rauðum stöfum og framdempara, sem hefur staðið fyrir utan hjá ykkur síðan í fyrravetur þá kannski látiði okkur vita.
;)
MD