Archive for Andmæli
Viðvörun: Fréttatími Stöðvar 2 veldur kvíðaköstum
Í fréttum stöðvar 2 í kvöld var fjallað um þann orðróm sem gengur um Large Hadron Collider öreindahraðalinn sem CERN (evrópska öreindarannsóknarstöðin) er að setja í gang á miðvikudagskvöldið. Í stuttu máli gengur þessi orðrómur út á að líklegt sé að heimurinn hreinlega farist. (Sjá myndskeið sem lýsir hvernig þetta gæti gerst). Orðrómurinn er búinn að vera ótrúlega þrálátur, enda fólki gjarnt að spá heimsenda.
Það er sjálfsagt fyrir fréttastofu að taka upp jafnþrálátan orðróm og fjalla um hann. Það er meira að segja skylda þeirra til að upplýsa almenning um eðli og sannleiksgildi slíkra orðróma. En þegar fréttamennskan er jafn ófagmannleg og raun bar vitni er fréttastofan hreinlega að bregðast skyldum sínum og stunda ótrúlega hræðsluvæðingu og popúlarisma. Fréttastofan hefur lengi stundað æsifréttamennsku en hérna gekk hún gjörsamlega fram af mér.
Fréttin sem sagt sagði frá heimsendaspánni, fjallaði að auki stuttlega um sjálfan hraðalinn en tók aldrei á spurningunni um öryggi tilraunarinnar. Í vandræðalegu viðtali við íslenskan þingmann, sem hefur áður lýst skoðun sinni á tilrauninni í bloggi sínu, var meira tekið undir hræðsluáróðurinn en hitt. Engin tilraun virtist hafa verið gerð að tala við einhvern sem hefði á einhvern hátt vit á málinu. Meðan umfjöllunin er svona á einni stærstu fréttastofu landsins þá er skiljanlegt að einhver taki málið alvarlega og ekki við þá að sakast.
Eftir sitja áhorfendur fréttatímans með nagandi óvissu í maganum um það hvort þeir eigi 2 sólarhringa eftir ólifaða og hvort það sé nú kominn tími til að gera hreint fyrir sínum dyrum eða láta drauminn loksins rætast. Heima hjá mér var rætt um ‘krípiness’ tilraunarinnar og hvort að vísindamenn hefðu leyfi til að gera svona tilraunir. Og við höfum ekki miklar forsendur til að ræða eðli tilraunarinnar eða öryggi hennar en gríðarlega trú á að þeir sem um hana sjá séu ábyrgir í sínum störfum og kannski meiri en meðal færni í að sækja okkur frekari upplýsingar.
Sem betur fer eru til vandaðir fréttamiðlar og CERN hefur meira að segja útbúið ágætan upplýsingavef sem er skrifaður með mjög smitandi áhuga á þeim svörum sem hverfillinn gæti gefið okkur.
Og ég er ekkert viss um að ég nenni að horfa oftar ég fréttir stöðvar 2. Ef allar eru jafnvel unnar er ég betur sett að sleppa því.
*hrmpf*
MD
***Uppfært***
Takk fréttastofa RÚV - Fyrst frétt um hraðalinn, svo um heimsendaspána, með viðtölum við vísindamenn og allt!
Vandræðagemlingur
Jæja, nú er ég búin að koma mér í vandræði eina ferðina enn. Og þau engin áhugamannavandræði: Ég hef fengið bandaríska innfllytjendaeftirlitið upp á móti mér. Þeir halda nefninlega að ég sé í Bandaríkjunum, sé búin að vera þar frá því í lok apríl í fyrra.
Úbbbbbbs!
Þetta var alveg óvart, ég segi það satt. Mér varð það s.s. á að ganga út úr Bandaríkjunum með “græna miðann” í passanum mínum. Þið þekkið hann, þennan sem er lagður inn í passann manns þegar maður er tékkaður inn. I-94W heitir hann víst.
Og svo því sé haldið til haga þá er það mér að kenna. Svo ég vitni beint í þetta vingjarnlega fólk:
If you made a timely departure from the U.S. and discover that you did not return your I-94 or I-94W, it is YOUR responsibility to set the record straight.
Og þar sem þetta var mér að kenna þá verð ég að sýna þeim fram á að ég sé ekki í Bandaríkjunum og að ég hafi í raun farið þaðan innan tilsetts tíma.
Þannig að nú er ég búin að útbúa pakka handa vinum mínum í innflytjendaeftirlitinu með vottorð frá Icelandair þess efnis að ég hafi verið um borð í flugi þeirra frá US auk þess sem er ljósrit af passanum mínum (komplett) sem sýnir að ég var í Ecuador stuttu síðar.
Þetta fer svo í ábyrgðarpóst strax eftir helgi og svo er bara að krossleggja fingur um að mér verði fyrirgefið.
Ætla samt að sækja um ferðamannaáritun næst þegar ég fer. Bara til að mín syndaaflausn sé ekki háð hvernig ég hitti á starfsmann innflytjendaeftirlitsins í Boston þegar ég fer í stóru útskriftarreisuna í vor.
En fyrst er að endurheimta karlinn frá téðu US en Ísland er ekki í stuði fyrir flug í dag.
:)
MD
GA - Y17
Ég get ekki látið það vera að kommenta á fjaðrafokið sem varð um helgina þegar það uppgötvaðist að með nýja bílnúmerakerfinu má mynda þriggja stafa orð.
Einhverjum gaur keypti bíl sem var úthlutað númerinu GA-Y17 og “þar sem hann hafði alltaf verið meira fyrir kvenfólkið” þá neitaði hann að láta sjá sig með þetta númer og fékk sér hégómanúmer. Það má svo sem hver hafa sína sérvisku og er það ekki svo sem þess virði að pirra sig á.
Ástæðan fyrir að þetta rataði í fréttirnar er aftur á móti ástæða til þess. Það sem þótti fréttnæmt var að Umferðarstofa hefur lagt “[b]látt bann við dónalegum bílnúmerum”. Og því furðaði fólk sig á að þetta dónalega orð skyldi sleppa í gegn. Blótsyrðið ‘GAY’.
Hefur barátta samkynhneigðra ekki náð lengra?
*hnuss*
MD
Comments off
Af gefnu tilefni: Er Prius umhverfisvænni en risajeppi?
Enn eru bandarískir bílaframleiðendur að ota sínum tota. Hér er holl lesning frá Hjalla sem kennir okkur að spyrja fyrst og trúa svo. Jafnvel þegar það er Mogginn sem á í hlut.
:)
MD
Ferðasagan
Hæ!
Ferðasagan kemur með myndunum en bara svo að ég sé ekki að menga þá frábæru ferðasögu með þeim lexíum sem ég lærði á síðasta sólarhringnum í ferðinni þá ætla ég að hafa þær sér.
Lexía 1:
Aldrei, aldrei taka við meðmælum um veitingastaði frá Bretum.
Síðasta kvöldið í ferðinni gistum við á 5 stjörnu hóteli og höfðum fyrir því að fara yfir lækinn á hrikalega slappan spænskan veitingastað meðan það eru 5 veitingastaðir í hótelinu sjálfu. Að meðmælum Breta sem var með okkur í för. What were we thinking?
Lexía 2:
Aldrei, aldrei hafa GSM símann annars staðar en í vasanum. Það rétt sleppur ef þú þarft að svara í hann, annars ekki.
Símanum mínum var s.s. stolið í flugvélinni á leiðinni heim (sjá hér fyrir neðan). Það væri vel þegið ef þið (again) senduð mér SMS svo ég geti bætt ykkur við símaskrána mína. Takk!
Lexía 3:
Aldrei, aldrei fljúga með KLM.
1) Flugtíminn
KLM flugið Amsterdam-Quito tekur 15 klt. Það er í alvöru ekki svona langt þarna á milli. Flugtíminn var samanlagt 12 tímar en hefði með réttu verið 10-11 ef ekki hefði verið fyrir millilendingarnar. (Iberia flugið frá Madrid tekur 11 klst). KLM finnst svo langt til Quito að þeir stoppa á 2 stöðum í leiðinni eins og sveitarúta. Eitt stoppið er í Bonair á hollensku Antilles eyjunum. Þar er tekið bensín. Er þetta ekki spurning um að nota í flugið vél sem hefur nógu langt flugspann til að það þurfi ekki að millilenda til að taka bensín? Hitt stoppið er í Guayaquil í suður-Ecuador. Svo er flogið til Quito í norður-Ecuador! Frá Guayaquil til Quito er hálftíma flug. Þarna á milli er líka flug á hálftíma fresti allan daginn. Af hverju KLM þarf að taka að sér innanlandsflug í Ecuador á 400 manna þotu er hreint óskiljanlegt. Sjaldan hefur koltvísýringi verið puðað út í andrúmsloftið fyrir jafnlítinn ávinning.
2)Sveitarútan
Þessar millilendingar þýða að það er ekki hægt að ná samfelldum svefni því að rétt þegar þú ert búinn að festa svefn þá er einhver að skipa þér að rétta úr sætinu og fara yfir öryggisatriðin um borð. Auk þess er verið að þrífa vélina þína með dótið þitt um borð. Síminn minn datt allllveg óvart ofan í einn ruslapokann.
3) Þjónustan
Öllum farþegum er boðið upp á sama in-flight-entertainment efnið og það er ekki sérstakur skjár fyrir hvert sæti. Efnið er vægast sagt rýrt (Wild hogs, anyone?).
Sætin hallast ekki aftur eins og Lazy boy (þ.e. setan færist ekki til undir manni) og það er troðið inn í vélina eins og gripaflutningavél. Og ef þú ætlar að hagræða sætaskipaninni og flytja þig til þá máttu eiga von á því að í næstu millilendingu komi í ljós að sætið er frátekið.
Þá mæli ég nú frekar með Kenya Airways við hvern sem er sem ætlar sér í langflug!
:)
MD
Hvalir eru með stærstu typpi í heimi
Getur einhver útskýrt fyrir mér af hverju Íslendingar hófu hvalveiðar aftur?
Ég trúi því svo sem ekki að þessar tegundir sem á að veiða séu í slíkri útrýmingarhættu að það megi ekki veiða af þeim nokkur stykki, það er ekki það. Ég bara skil ekki af hverju við ættum að vera að því. Það virðist ekki vera til neinn markaður fyrir kjötið. Aftur á móti eru góðar líkur á að þetta komi til með að hafa slæm áhrif á ferðamannaiðnaðinn. Svo ekki erum við að þessu til að styrkja undirstöður efnahagslífsins með því að auka við fjölbreytni í útflutningsgreinum.
Þannig að ég get ekki skilið þetta öðruvísi en að íslensk stjórnvöld hafi fundið sig knúin til að standa upp á stól og segja hátt og snjallt:
“Ég geri nú bara það sem mér sýnist! Reyniði bara að stoppa mig!”
Sem á góðri íslensku útleggst:
“Ég er örugglega með stærra typpi og þið hinir! Ég skora á ykkur að láta reyna á!”
Og mér finnst það ekkert sérstaklega þroskuð hegðun.
Svo ég kalla hér með eftir skýringu sem lætur mér ekki líða eins og að ég búi í landi sem er stjórnað af typpaöfund.
Einhver?
:)
MD
“Do [women] really exist anymore in this business?”
Ég var að dunda mér við að lesa blogga um daginn og rakst á bloggfærslu þar sem höfundur var að tala um að hann hefði ákveðið að hann langaði ekki að vinna hjá Google og þess vegna afboðað sig í atvinnuviðtal hjá þeim. Þetta fannst mörgum fáránlegt viðhorf og því spunnust heilmiklar umræður um vinnu, vinnustaði og vinnuviðtöl. Týpískar kommentaumræður með hæfilegu magni af misskilningi, andmælum og meðmælum. Ekkert til frásagnar enn sem komið er svo ég skannaði frekar hratt yfir kommentin.
Það var því helber tilviljun að ég skautaði ekki yfir komment frá sænskum gaur sem sagði sína reynslu af því að sækja um vinnu í hugbúnaðarbransanum í Svíþjóð. Sem algjörri hliðarhugsun skaut hann inn setningu sem vakti athygli mína. Raunar gerði mig orðlausa. Hann segir:
( BTW the job had actually been given to a woman, do they really exist anymore in this business? I have been working for six years in three different companys and I have never worked with a woman).
Hann er ekkert að pirra sig á því að kona fékk starfið sem hann sótti um, honum fannst þetta bara staðreynd sem hann langaði að koma að.
Og Vá!
Vaaaá!
Þessi maður hefur unnið í 6 í hugbúnaðarbransanum og hann hefur ALDREI unnið með konu?? ALDREI? Og það er ekki eins og hann búi í Afghanistan. Hann býr í Svíþjóð!
Þetta er Bjössa-reglan. Í þróunarteymi er líklegra finna tvo nafna en tvær konur.
Ég hef unnið með fleiri konum í sænska hugbúnaðarbransanum en hann! Reyndar, þá hef ég unnið með slúnk af sænskum hugbúnaðarfyrirtækjum og alltaf hitt þar fyrir konur. Það er líka reynsla Hjalla sem hefur líka unnið talsvert í Svíþjóð.
Hvernig í ósköpunum fer hann þá að því að hitta aldrei konur? Hvurslags fyrirtæki eru það? Ég er satt að segja mjög forvitin.
Read the rest of this entry »
Tómið
Þið hafið kannski tekið eftir því að stundum er bloggsíðan mín tóm, þ.e. það kemur bara hvít síða. Ég sé þetta sjálf stundum ekki fyrr en seint og um síðir og hef því ekki getað spottað neina reglu í því hvenær þetta gerist. Ef þið sjáið þetta t.d. ef þetta kemur upp þegar þið eruð að kommenta eða eitthvað þá væri vel þegið ef þið sendið mér línu.
Ta!
:)
MD
London
Guardian Unlimited: Newsblog0851: First incident between Moorgate and Liverpool St. An explosion hits the train 100 yards from Liverpool St, in the tunnel. There are seven fatalities.
0856: The second blast happens on a tube train between Kingâs Cross and Russell Square. 21 are confirmed dead.
0917: A third blast, this one at Edgware Road. It was powerful enough to blow a hole into another train, with three trains in all involved. Five dead.
0947: The fourth blast, this time on a bus in Tavistock Place. There are no numbers on fatalities from this attack.
There was no warning, and no claims of responsibility yet.
DAC Brian Paddick: “This was clearly a callous attack on purely innocent members of public clearly designed to kill and injure members of the public.”
Við hljótum öll að vera með hugann í London.
MD
Comments off