Archive for Atburðir
Heimspekingarnir Calvin og Hobbes
Hafa ótrúlegt lag á því að komast að kjarna málsins. Blaðamaður Moggans sem gróf þetta upp í tilefni dagsins fær sérstakt hrós.
:)
MD
P.S. Þakka Birni Þór fyrir ábendinguna!
Rússíbanareið
Nú veit ég ekkert um peninga og hefur bæði þeim og mér þótt best að hafa sem minnst samneyti við hvort annað sem lýsir sér fyrst og fremst í því að ég reyni að losa mig við þá um leið og ég kemst yfir þá. Þetta er aðalástæðan fyrir því að ég er ekki fyrsta bankastýra á Íslandi.
Þess vegna ætti ég að segja sem minnst um ástandið.
En mig langar að stinga að ykkur observation sem er svona mín upplifun af íslenskri hagstjórn. Henni má lýsa með sínusbylgju:

Ég er nefninlega eldri en tvævetur og eftir að ég hef komist á fullorðinsár hef ég tekið þátt í tveimur hæðum (sumir vilja nefna þetta bólur) og einni lægð í efnahagskerfinu. Ég skil svo mikið í fréttunum að vita að núna erum við einhversstaðar nálægt botninum í sínusbylgjunni minni fínu. Og af því að ég hef upplifað það sjálf tvisvar þá veit ég að fljótlega á eftir botninum er náð kemur uppsveiflan. Og þar sem ég veit að ég get ekki nokkurn skapaðan hlut gert í málunum þá bara bíð ég þolinmóð eftir að mér verði kippt upp aftur. Rétt eins og ég vissi þar sem ég sat á toppnum á bylgjunni í risapartýi þar sem Magni og Dilana léku undir dansi fyrir, ó, svo stuttu síðan, að nú væri bara ein leið og hún væri niður á við.
Aðhvarf að miðgildi (regression toward the mean) heitir það.
Þetta er kannski ekki sérstaklega skarpskyggnt mat á ástandinu en þetta er mín hugmynd (mental model) um það hvernig efnahagskerfið virkar. Og ég er bara farþegi í þessum rússíbana.
En það eru fleiri fyrirbæri sem má lýsa á sama hátt. Sveiflukennt skap þess sem þjáist af geðhvarfasýki tekur sínar hæðir og lægðir. Og þó að svartnættið neðst í bylgunni sé yfirþyrmandi þá eru margir þeir sem þjáðst af geðhvarfasýki ekki tilbúnir til að fórna ofsagleðinni á toppnum með því að taka lyf.
Þarna finnst mér við geta fundið aðra samlíkingu við íslenska hagstjórn. Við erum ekki tilbúin til að taka geðstýrandi lyf (þ.e. binda taum okkar við stærri efnahagskerfi eins og Evrópusambandið eða Bandaríkin) því að þá fengjum við ekki að njóta vímunnar í maníunni.
En hvað finnst farþegunum í rússíbananum? Viljum við sigla lygnari sjó eða sækjum við í adrenalínkikkið? Er það ekki það sem við ættum að taka afstöðu til í næstu kosningum?
:)
MD
Embla besti íslenski vefurinn 2005!
Embla valin besti íslenski vefurinn
Mbl.is var valinn besti íslenski vefurinn þegar Íslensku vefverðlaunin voru afhent í dag. Var sérstaklega skírskotað til vefleitarinnar Emblu, sem var talin helsta nýjungin á vefsvæði mbl.is. Vefverðlaunin hafa verið veitt frá árinu 2000. Aðstandendur Íslensku vefverðlaunanna eru ÍMARK, samtök íslensks markaðsfólks og nokkrir aðilar sem tengjast vefiðnaðnum.
Sagði það - ég á snjallasta eiginmann í heimi!
Til hamingju, Spurl!
:)
MD
Nytsemisdagurinn
Í dag er í fyrsta sinn haldinn hátíðlegur, Nytsemisdagurinn!
Áhugaverð lesning í tilefni dagsins.
The secret of making things work
Consumers forever grumble about products and services making their life difficult, but there are some shining examples leading the way. As World Usability Day approaches, what are the best doing right?
Og hetjan mín lætur sitt ekki eftir liggja:
The struggle to tame technology is not new. “I still am fond of a wonderful quote in a manual for the phonograph: ‘This phonograph only takes two years to [learn to] use,’ ” says Donald Norman of the Nielsen Norman Group, which helps companies make “human-centered” products.
úr Why are tech gizmos so hard to figure out?
Til hamingju með daginn!
:)
MD
Comments off
ÞSÍM og Heiðar

Sasa + Heidar
:) MD - Sent ur simanum minum
Póst sendi MD
Sent með Símbloggi Hex
Comments off
Tók sig upp gamalt áhugamál…
Þetta var ég að dunda mér við þegar ég átti að vera í vinnunni á mánudaginn…
Stöð 2: 22. ágúst kvöldfréttir
Velja fréttina um flugumferðarstjórnun…
:)
MD
Póst sendi MD
Sent með Símbloggi Hex
Sumarfrííííííí
Ég, Hjalli og Bono í Kaupmannahöfn um helgina.
Ég, Edda og Hrönn í Reykjavík eftir helgina!
Ég, Tommi og Kt í Reykjavík eftir helgina!!
Ég, Emil og Aleks í Reykjavík eftir næstu helgi!!
Ég hef bara eitt um það að segja:
dsljfksaælkfasdælfjsadælfkj
:D
MD
London
Guardian Unlimited: Newsblog0851: First incident between Moorgate and Liverpool St. An explosion hits the train 100 yards from Liverpool St, in the tunnel. There are seven fatalities.
0856: The second blast happens on a tube train between Kingâs Cross and Russell Square. 21 are confirmed dead.
0917: A third blast, this one at Edgware Road. It was powerful enough to blow a hole into another train, with three trains in all involved. Five dead.
0947: The fourth blast, this time on a bus in Tavistock Place. There are no numbers on fatalities from this attack.
There was no warning, and no claims of responsibility yet.
DAC Brian Paddick: “This was clearly a callous attack on purely innocent members of public clearly designed to kill and injure members of the public.”
Við hljótum öll að vera með hugann í London.
MD
Comments off


