Archive for Athyglisvert

Gonna party like it’s 1999

Tóti er á Global Messaging. Við innskráningu fékk hann þetta:

Tóti

;)
MD

Til varnar ljóskunni

Þó það sé altalað að við systurnar höfum engan húmor þá stóð ég mig að því um daginn að lesa grein um húmor. Greinin var í Tímariti Morgunblaðsins og var mjög merkileg. Þar var fjallað um hina gömlu þrautreyndu formúlu:

Tragedía + Tími = Kómedía

Var farið yfir stærstu tragedíur síðari tíma og velt upp spurningunni hvenær við mættum fara að hlæja að þeim. Hvenær má fara að því að hlæja að 11. september 2001? Hvenær má fara að hlæja að flóðbylgjunum í Indónesíu? Hvenær má fara að hlæja að snjóflóðunum? Mjög flottar pælingar og góð grein.

Hugmyndin um húmor var rædd, hvernig viðhorf og hugmyndir um ‘normal’ hegðun skína í gegnum húmorinn. Hvernig við fjöllum um ákveðna þjóðfélagshópa og hegðun þeirra. Hvernig við megum segja allt í brandara sem ekki má segja upphátt. Í brandara þarf maður ekki að vera pólítískt rétthugsandi, tillitsamur eða aumingjagóður. Klassíkt dæmi eru náttúrulega Hafnarfjarðarbrandarar.

Eins og höfundur greinarinnar, Sigurbjörg Þrastardóttir, segir sjálf eru þeir fyrst og fremst græskulaust grín sem hefur lítið með upprunann að gera. Hafnfirðingar skilja þetta og taka það því ekki nærri sér að það sé hlegið svoldið að þeim.

Allt öðru máli gegnir þó með ljóskurbrandara samkvæmt höfundi. Þeir eru rætnir og í þeim býr andstaða við jafnrétti og kvenfyrirlitning.

Uh…

Það má sem sagt gera grín að Hafnfirðingum. Samkvæmt greininni má m.a.s. gera grín að atburðunum 11. september, lituðu fólki, Eþíópíubúum, samkynhneigðum og fólki vegna trúar þeirra. En ekki ljóskum. Alls ekki ljóskum.

Eh…
Read the rest of this entry »

Regnbogi

:) MD - Sent ur simanum minum
Póst sendi MD
Sent með Símbloggi Hex

Eitt sem ég gerði mér ekki grein fyrir en Aleks og Emil bentu mér á í sumar, er að meirihluti jarðarbúa hefur aldrei séð regnboga nema í fossum. Hér er einn, hann var alveg heill en þetta var besta myndin sem ég gat náð. Það getur verið ákveðnum kostum búið að búa í landi þar sem bæði getur rignt og verið sólskin í einu…

:)
MD

Vísindin efla alla dáð

Take the MIT Weblog Survey

:)
MD

Formúla dagsins

Red one-two and a Jordan podium as Michelin withdraw

The US Grand Prix began to go wrong when all of the 14 Michelin runners came into the pits at the end of the green flag lap, leaving only Michael Schumacher on ‘pole position’ from Ferrari team mate Rubens Barrichello, the two Jordans of Tiago Monteiro and Narain Karthikeyan, and the two Minardis of Christijan Albers and Patrick Friesacher in front of the shocked 130,000 crowd.

“For a successful technology, reality must take precedence over public relations, for Nature cannot be fooled. “

- Richard Feynman

Dagur samstöðunnar a.k.a. annar í Hvítasunnu

Mbl.is - Frétt - Frakkar þurfa að mæta til vinnu á frídegi samkvæmt úrskurði

Frídagurinn sem um ræðir er 16. maí. Ríkisstjórnin segist hafa valið hann sem frídaginn sem fólk eigi að vinna á og kallar daginn „Dag samstöðunnar“. Deginum hefur verið breytt í kauplausan vinnudag og á féð að fara í sjóð fyrir eldri borgara. Er talið að ríkissjóður muni hagnast um tvo milljarða evra eða um 120 milljarða íslenskra króna á því. Ákvörðunin er þó að vonum gífurlega óvinsæl á meðal launafólks.

Og halda Frakkar í alvöru að þeir komi til með að hagnast um 2 milljarða á að franskt launafólk mæti í fýlu í vinnuna þegar því finnst það eiga vera í fríi og verði í fýlu næstu vikurnar áfram, vinnandi á hálfum hraða?

Mar bara spyr…
:)
MD

Tvennt

Tvennt:

Af hverju var það talið góð hugmynd að einsetja skóla?

Hvað finnst ykkur um Bahamas?

:D
MD

Ótrúlegar dýralífsmyndir

Fékk sendar alveg magnaðar myndir af jörðinni okkar og íbúum hennar. Mæli með þessu.

Dýralífsmyndir (1,8 MB)

:)
MD

Íslenskt hugvit á ferð

Sjóndeildarhringur

Lára bendir á mjög athyglisverðan vef AlJazeera - sérstaklega teiknimyndirnar sem gefa okkur sem erum hinu megin á hnettinum svolitla innsýn í hvernig heimurinn horfir við fólki í mið-Austurlöndum. Teiknimyndirnar eru neðst á síðunni.

:)
MD

Older entries »