Archive for Fliss
Of mikið kaffi?
Þið vitið að ég þoli ekki mikið af kaffi. Við erum að tala um svona 1-2 kaffibolla á viku. Og ég hef oft reynt að útskýra þetta fyrir fólki sem skilur ekki hvað ég á við með að ég þoli ekki of mikið kaffi. Hérna er stutt fræðslumyndband sem súmmerar það upp hvernig (undir vel skilgreindum aðstæðum í tilraunastofu) einstaklingur sem hefur fengið of mikið kaffi hagar sér:
:)
MD
Ha? Eitt Aco?
Hjalli stríðir mér iðulega á því að mér misheyrist. Aðallega samt á því að ég ét upp allt sem mér heyrist.
Dæmi:
Ha? Viltu eitt Aco?
Nei, Magga Dóra, ég pantaði heitt kakó!
Hér er dæmi um að ekki bara mér getur misheyrst og hér hefði Google kannski bara, eins og ég svo oft, átt að þegja frekar en að spyrja notandann hvað hann meinti:
;)
MD
Ég er komin með MBA
Það er vandlifað. Og alltaf þegar maður er með yfirlýsingar þá þarf maður að éta þær ofan í sig. Ég er sem sagt komin með MBA. Eða það er það sem menn kalla MacBook Air.
Og þar liggur hættan. Einhverjir áhættusæknir Þjóðverjar hafa komist að því að MBA er svo þunn að með lagni þá má skera sig á henni! Ef fólk kann ekki við að prófa það á sjálfu sér, þá má víst prófa það á brauðhleif.
;)
MD
Hugsanalestur
Því miður þá tók ég ekki hugsanalestur 101 í sálfræðinni í gamla daga. Þess vegna á ég í erfiðleikum með að skilja eftirfarandi skilaboð sem mér voru að berast:
“Einhver hefur kosið að senda þér eftirfarandi frétt af mbl.is
Skilaboð frá viðkomandi: “okkar dót?”
Veröld/Fólk | mbl | 15.5 | 7:47
Sólarorkubrjóstahaldari
Undirfataframleiðandinn Triumph kynnti í gær brjóstahaldara sem safnar sólarorku sem dugað getur til að hlaða farsíma eða iPod. Meira
© mbl.is/Árvakur hf”
Okkar?
Ég fæ ótrúlega oft skilaboð frá vinum og kunningjum með skemmtilegum fréttum frá mbl þar sem við komandi gleymir að kvitta fyrir sig. Yfirleitt næ ég að draga ályktun (þið megið kalla mig Sherlock) um hver er á ferðinni en hérna eru engar vísbendingar nema ég veit að þetta er ekki Hrönn því að það er íslenskur stafur í skilaboðunum.
En hver…?
:)
MD
Fréttatilkynning
maggadora.com hefur borist eftirfarandi fréttatilkynning frá Möggu Dóru sjálfri:
“Mér þykir rétt að eyða óvissunni sem ég veit að nagar ykkur en þið getið tekið ró ykkar á ný því að ég hef það bara ágætt í dag.”
Beðið er með eftirvæntingu eftir annarri fréttatilkynningu frá Möggu Dóru á morgun, en ekki er víst að þetta ástand vari lengi.
;)
MD
Þetta var náttúrulega klaufalegt…
…og leiður misskilningur en Vilhjálmur átti ekki við borgarlögmann. Hann talaði við Borgar lögmann!
;)
MD
endurmörkunarherferðin!