Archive for Jafnrétti
“Do [women] really exist anymore in this business?”
Ég var að dunda mér við að lesa blogga um daginn og rakst á bloggfærslu þar sem höfundur var að tala um að hann hefði ákveðið að hann langaði ekki að vinna hjá Google og þess vegna afboðað sig í atvinnuviðtal hjá þeim. Þetta fannst mörgum fáránlegt viðhorf og því spunnust heilmiklar umræður um vinnu, vinnustaði og vinnuviðtöl. Týpískar kommentaumræður með hæfilegu magni af misskilningi, andmælum og meðmælum. Ekkert til frásagnar enn sem komið er svo ég skannaði frekar hratt yfir kommentin.
Það var því helber tilviljun að ég skautaði ekki yfir komment frá sænskum gaur sem sagði sína reynslu af því að sækja um vinnu í hugbúnaðarbransanum í Svíþjóð. Sem algjörri hliðarhugsun skaut hann inn setningu sem vakti athygli mína. Raunar gerði mig orðlausa. Hann segir:
( BTW the job had actually been given to a woman, do they really exist anymore in this business? I have been working for six years in three different companys and I have never worked with a woman).
Hann er ekkert að pirra sig á því að kona fékk starfið sem hann sótti um, honum fannst þetta bara staðreynd sem hann langaði að koma að.
Og Vá!
Vaaaá!
Þessi maður hefur unnið í 6 í hugbúnaðarbransanum og hann hefur ALDREI unnið með konu?? ALDREI? Og það er ekki eins og hann búi í Afghanistan. Hann býr í Svíþjóð!
Þetta er Bjössa-reglan. Í þróunarteymi er líklegra finna tvo nafna en tvær konur.
Ég hef unnið með fleiri konum í sænska hugbúnaðarbransanum en hann! Reyndar, þá hef ég unnið með slúnk af sænskum hugbúnaðarfyrirtækjum og alltaf hitt þar fyrir konur. Það er líka reynsla Hjalla sem hefur líka unnið talsvert í Svíþjóð.
Hvernig í ósköpunum fer hann þá að því að hitta aldrei konur? Hvurslags fyrirtæki eru það? Ég er satt að segja mjög forvitin.
Read the rest of this entry »
Sexual ignorance
BBC NEWS | Asia-Pacific | China’s dangerous sexual ignorance In one cafe in southern China, pictures of naked women hang on the walls - a rare sight in this country.But that is what this cafe is all about. It was set up by the City Government Reproductive Health Centre, and is an attempt to bring sex education into the open.
The centre’s director, Tao Lin, showed me the services on offer - free condoms, and books and information about sex.
Spurning um að fá Kínverja til að hjálpa bandaríkjamönnum með “The US’s dangerous sexual ignorance”?
:)
MD
Comments off
Kynferði og upplýsingatækni
Kynferði og upplýsingatækniHádegisfyrirlestur á vegum Rannsóknastofu í kvenna- og kynjafræðum fimmtudaginn 11. mars kl. 12-13 í stofu 101 í Lögbergi.
Guðbjörg Linda Rafnsdóttir lektor flytur fyrirlesturinn “Kynferði og upplýsingatækni.”
Í fyrirlestrinum verður fjallað um tengsl upplýsingatækni og kynferðis í ljósi ólíkra kenningastrauma innan femínismans. Einnig verður greint frá íslenskri rannsókn um upplýsingatækni og persónuvernd og sýnt á hvern hátt upplýsingatæknin viðheldur ríkjandi kynjaskiptingu á vinnumarkaðinum, í stað þess að draga úr honum eins og margir höfðu spáð fyrir um. Hugtökin tæknileg og félagsleg nauðhyggja verða notuð til að greina þau öfl sem koma í veg fyrir breytingar.
Dr. Guðbjörg Linda Rafnsdóttir er lektor í félagsfræði við Háskóla Íslands og er starfandi félagsfræðingur á rannsókna- og heilbrigðisdeild Vinnueftirlitsins. Auk rannsókna um áhrif upplýsingatækni á störf og stöðu kvenna og karla á vinnumarkaði, hefur hún lagt stund á rannsóknir um kynjaskipta verkalýðshreyfingu hér á landi, kynjaskiptan vinnumarkað og samspil vinnuumhverfis og líðanar starfsmanna.
Fyrirlesturinn er öllum opinn og aðgangur ókeypis
Ég held að það sé mikilvægt að sem flestir úr upplýsingatæknigeiranum mæti til að sjá hvort að hann sé rétt kynntur hjá félagsfræðingnum og ef svo er velta því fyrir sér hvaða lexíur við getum lært af því.
:)
MD
Alþjóðlegur kvennadagur
Í dag, 8. mars, er alþjóðlegur baráttudagur kvenna. Góð stund til að minnast hve langt við erum komin og hversu langt er eftir til að ná jafnrétti.
Spáiði í það og flettið þessu athyglisverða myndasafni af BBC fréttavefnum:
BBC NEWS | In Pictures | In pictures: International Women’s Day
:)
MD
Comments off
Kvennamál
Frábærar greinar bæði á Misbehaving og hjá Helgu. Kjarnakonur þar á ferð sem lýsa hlutunum eins og þeir eru.
Ég lærði það af mömmu að standa upp á stól alltaf þegar ég get og hrópa “áfram stelpur!” en reynsla mín hefur verið sú að konur eru ekki yfirleitt til í að gera það.
Read the rest of this entry »
Comments off