Archive for Ljósmyndun

Górillu-list

Þar sem ég hef ekkert gáfulegt um bankakreppuna að segja þá langar mig bara að segja ykkur frá því að við Hjalli erum orðin fræg.

Þýskur upplýsingavefur um górillur ákvað að nota mynd sem við tókum í Rúanda í vor í hausinn á vefnum. Undir Creative Commons leyfinu er það náttúrulega ekkert nema sjálfsagt.

Upprunalega myndin:
Górilla i Virunga-fjöllunum

:)
MD

Krít

Hérna eru komnar nokkrar myndir frá ferð okkar til Krítar með Lottu, Eddu og Gulla.

:)
MD

Tabblo frá San Fran

Ég tók með mér nýju vasa-myndavélina okkar (Olympus Stylus 1030SW - hún er mjög kúl og er t.d. vatnsheld niður í 10m!) til San Francisco og tók nokkrar myndir þar sem ég skoppaði um og túrhestaðist.

Smellti þeim upp í sérstakt San Fran tabblo ef þið viljið skoða.

:)
MD

Bestu myndirnar

Hérna eru bestu myndirnar frá Úganda og Rúanda.

:)
MD

Uppfært 11. apríl - Tabblóið var valið Tabbló dagsins í dag á forsíðu Tabblo :D

Ferðasagan

Jæja, þarna er loksins komin ferðasagan frá Úganda og Rúanda.

Bestu myndirnar verða teknar saman fljótlega og svo er það bók…
:)
MD

Ferðasagan frá Ecuador

Jæja, þá er hún loksins komin, ferðasagan frá Ecuador.

Mátti ekki tæpara standa, svona þegar kennsla er hafin og annir haustsins hellast yfir (en skáldlegt ;) ).

:)
MD

Hnúfubakur

Í framhaldi af þessari frétt brugðum við hjónakornin okkur út á Sundin með Hafsúlunni og hittum þar fyrir hnúfubak nokkurn sem hafði líklega ekkert gaman af því að hitta okkur en við höfðum talsvert gaman af því að hitta hann. Hann stökk ekkert en sýndi okkur sporðinn.

:D
MD

Ecuador - bestu myndirnar

Jæja, þá erum við búin að velja bestu myndirnar frá Ecuador og ég hef að venju tabblóað þær til að þær njóti sín sem best. Þessar myndir eru valdar vegna þess að við erum frekar ánægð með þær, ekki vegna þess að þær sýna hvað við vorum að gera. Ferðasagan kemur fljótlega.

Þangað til, hér eru bestu myndirnar frá Ecuador.

:)
MD

Boston 2007

Hæ!

Hérna eru myndir frá því í Boston ferðinni minni sem þið ættuð að skoða.

Flottar myndir og fallegt fólk!

Myndirnar hennar Hrannar. Ég held að svarið sé b)

Myndirnar hans Emil. Ég meina, hafið þið nokkurn tímann séð jafnmargar fallegar og gáfaðar konur saman komnar?

:)
MD

Ný Tabblo

Jæja, hérna eru þrjú ný Tabblo sem sýna nýjustu ferðalög okkar. Tvö eru frá því síðasta sumar. Eins gott að klára þetta áður en maður leggst aftur í ferðalög af fullum krafti. Forsmekkurinn var um síðustu helgi þegar við fórum til Búdapestar. Næsta ferð er svo planlögð í lok apríl að hitta í Boston allar flottustu stelpur sem norður-ameríka hefur að geyma.

En þangað til megiði til með að kíkja á:
Vestfirði 2006 , Ferðast með Alex og Emil og Búdapest 2007.

:)
MD

Older entries »