Archive for Tónlist

Tom Waits er sjúklegur töffari

Ég hélt ad ég gaeti ekki ordid meiri addáandi Hr. Waits en ég var en thvílíkir tónleikar!! Madurinn hafdi salinn í vasanum sem kristalladist í thví thegar allir vidstaddir sungu Innocent when you dream vid undirleik meistarans. Úff!! Ekki laust vid ad undirritud hafi á theirri stundu verid í töluverdri gedshraeringu. Stórkostlegar útsetningar á lögum eins og Make it rain og Way down in the hole. 9th and Hennepin beint í aed! Eg fae gaesahud bara af minningunni einni saman :D

En nú sitjum vid á ATL og bídum eftir fluginu til LGA sem alltaf er verid ad seinka minna og minna. Best ad fara og fá sér e-d ad borda til ad drepa tíma. Ég segi ykkur frá gledinni vid ad tengjast flugvalla wi-fi-um sídar.

:)
MD

Það er orðið opinbert: Ég er gömul kjééélling

Ég fór á Air tónleikana í vikunni, sem ekki er í sjálfu sér í frásögu færandi. Þetta voru fínir tónleikar og menn sem kunna sitt fag. Enduðu með blasti þannig að allir tónleikagestir fóru vel sáttir út í bjarta sumarnóttina. Upphitunaratriðið var sannarlega eftirtektarvert og ættu allir tónlistarunnendur að fletta upp á Kate Havnevik ekki seinna en strax.

En þetta var meira svona umgjörðin en kveikjan að þessari mikilvægu uppgötvun um sjálfa mig.

Á tónleikunum stóð ég í röð á klósettið með vinkonu minni. Allt í kringum okkur stóðu konur sem litu út fyrir að hafa verið á tónleikum fyrir 20 árum síðan. Við erum að tala um stretsbuxur með lykkju undir hælinn, stórar peysur með víðu hálsmáli, túberað hár og píanóbelti. Segi og skrifa píanóbelti.

Og að mér setti hroll.

Ég sneri mér að vinkonu minni og hvíslaði að henni (til að styggja ekki nágranna mína): “Hvað gerðist?? Mér líður eins og það sé 1987!” Vinkona mín horfði blákalt í augun á mér og spurði “Hvað, ertu nýkomin úr frumskóginum? Þetta er tískan, girlfriend.”

Og þá rann það upp fyrir mér.

Ískaldur veruleikinn.

Ekki nóg með að ég vissi ég ekki hvað var í tísku. Mér fannst það líka ljótt.

Ergo: Ég er orðin gömul kjééélling.

Q.e.d.

Það var við manninn mælt að ég hreinlega lagðist í rúmið og er rétt að ná heilsu aftur. Ég verð þó með viðkvæmasta móti á næstunni þannig að þið kannski komið fallega fram við gömlu konuna.

:)
MD

Accidentally fall

Lagið úr KB banka launaverndar auglýsingunni:

It miek með Desmond Dekker.

:)
MD

Vid 2 á U2!

Póst sendi Mon
Sent með Símbloggi Hex

Todmobile og sinfónían

Góðan daginn!

Ég keypti um helgina geisladisk handa kærastanum mínum, sælar minningar
um tónleika Todmobile og sinfóníunnar í Laugardalshöll. Þegar heim kom
kom í ljós að ég get ekki notað hann. Þannig er mál með vexti að ég á
ekki stereógræjur. Ég er hins vegar búin að afrita alla geisladiskana
mína á harðan disk og tónlistar er einungis notið á þessu heimili frá
því safni. Við erum fyrir mörgum árum hætt að nenna að standa upp og
setja í geisladisk. Eftir að við gerðum þetta hlustum við líka á miklu
meira af tónlist. En þetta er ekki hægt með Todmobile og
sinfóníudiskinn. Ónei. Útgefandi er búinn að ákveða hvernig við ætlum að
nota þennan disk. Og ég er meira en lítið fúl því að fyrir mér er þessi
diskur ónýtur. Framvegis ef ég sé að ekki er hægt að afrita disk sem mig
langar í þá kaupi ég hann ekki. Afritunarvörnin er því orðin kaupvörn.
Til hamingju.

En spurning mín er þessi. Ef ég get sannarlega sýnt fram á að ég eigi
téðan disk (t.d. sent hann til ykkar í pósti, ég hef ekkert með hann að
gera) get ég þá fengið þessi lög á stafrænu formi af tónlist.is? Eða
þarf ég í alvöru að kaupa hann tvisvar? Eða sleppa því alveg.

Með kveðju, Margrét Dóra

Afrit birt á blogginu mínu: www.maggadora.com/blog - sem og svar.

Sent með Símbloggi Hex

Pixies eru að koma!

Todmobile og sinfónían a.k.a. félagssálfræðitilraunin

Við vorum sem sagt að koma af tónleikum með Todmobile og sinfóníunni í Laugardalshöll. Ekki ónýtir tónleikar, þvílík stemmning og tónlistarfólkið ætlaði ekki að fá að hætta að spila fyrir gesti. En það byrjaði ekki jafn vel.
Read the rest of this entry »